Gunna 的个人资料Gonzo-World照片日志列表更多 工具 帮助
5月27日

Á leiðinni burt í sólina................

 
Nei, ég er ekki að fljúga af landi brott til einhvers af hinum viðfrægu sólarlandastöðum Íslendinga. Ég er bara á leiðinni til Akureyrar. Hafið þið séð veðurspána þarna fyrir næstu vikuna gott fólk? Eigum við að ræða það eitthvað? 17-20 stiga hiti og sól. Ííííííha!
 
Hún Edda uppáhalds ætlar að vera með fjórar leiksýningar á Brilljant skilnaði í Leikfélagi Akureyrar um næstu helgi og að sjálfsögðu skelli ég mér með henni til að hvísla. Öhhhh, vera á launum fyrir að fara til Akureyrar...........gerist það mikið betra?
 
Helga Krullubeib ætlar með og við endurtökum því "Akureyris-stemninguna" okkar frá því í september s.l. Þetta verður bara snilld!
 
Annars allt frábært að frétta. Guðjón Pétur sæti frændi útskrifaðist sem stúdent frá FG síðasta laugardag, akkúrat 10 árum eftir að ég útskrifaðist.
 
Ég gömul....................JÁ!!!
 
Já og svo var auddað horft á Eurovision í góðra vina hópi og tekið heljarstökk í hvert skipti sem Íslendingar fengu stig, og þreföld skrúfa í hvert skipti sem Svíþjóð fékk EKKI stig, muhahahaha, það var náttl. bara yndislegt.
 
Jæja mín kæru sem á Íslandi dveljist, ég vona svo sannarlega ykkar vegna að þið eyðið næstu dögum á norður- eða austurlandi. Nú ef ekki...........................Njenjenjenjenje, liggaligga lá:o)
 
Gonzo has left the building.
 
 
5月20日

Þetta var sagan af því...................

 
Í gamla daga var maður sem átti ljúfa konu, en hún var ljúf við fleiri en hann. Þessi maður hét Davíð.
 
Á þessum tíma var ekki hægt að versla öl hvar sem er, en Davið var þekktur fyrir það að eiga alltaf öl en enginn vissi hvar hann keypti það.
 
Dag einn komst Davíð að því að kona hans hafði verið ljúf við slátrarann í bænum. Þá varð Davíð reiður og ákvað að lokka slátrarann og hefna sín á honum.
 
Dag einn fór Davíð til slátrarans og sagði "Ég skal sko sýna þér hvað Davíð keypti ölið". Svo fór hann og tók hann í bakaríið og gaf honum einn á snúðinn!
 
Þetta er upphafið af þessum þremur orðatiltækjum.
 
 
...................Jáááááá, þetta var sagan af því:o)
5月8日

"Gerðu-eins-og-þér-er-sagt"- dagar

 
Fólk er fífl. Er og verður alltaf fífl.
 
Nei, ég er ekki að komast að þessari niðurstöðu í fyrsta sinn. Vildi bara ítreka að ég er enn sömu skoðunar.
 
"Hjólað í vinnuna" MY ASS!!! Frík á hjóli út um allt núna, af því þeim er sagt að gera það. Fólk sem síðan hjólar ekki aðra daga. En núna verður að gera það. Æði!!!
"Reyklausi dagurinn". Fólk sem heldur skjálfandi út heilan dag reyklaust, af því þeim er sagt að gera það. Hættir samt aldrei að reykja og reykir alla aðra daga ársins.
 
Ég ber t.d. mikla virðingu fyrir föður mínum, sem hætti að reykja fyrir meira en 15 árum síðan. En hann á það til að kveikja sér í......................... Á REYKLAUSA DAGINN!
 
En ég veit ekki, er fólk almennt svona rosalega vel upp alið? Var "gerðu það sem þér er sagt" eina setningin sem það ólst upp við? Ég held ekki. Er fólk kannski svona rótlaust, án tilgangs, að það fagnar því fegið þegar því er bara sagt hvað það á að gera? Það er einhver mikil sálfræði á bak við þetta.
 
Hvar var t.d. "gerðu eins og þér er sagt" - andinn þegar við stungum Dani í bakið 1944? Hvenær byrjaði þetta allt saman? Og hver stendur á bak við þetta? Geta bara hvaða jólar sem er út í bæ komið með klikkaða hugmynd? "Hey, mér finnst að allir eiga að mæta með sleif í vinnuna þann 9. maí". Svo er þessu á einhvern illskiljanlegan hátt komið í umferð og áður en maður veit af eru allir labbandi um með sleif. Nú eða "Ryksugudagurinn" Þú bara VERÐUR að ryk-sjúga í dag, því það Á að gera það. Aðra daga er heimilið svínastía.
 
Þetta er bara rugl. Ég ætla að stinga upp á "Gerðu-það-sem-þú-vilt" dögum. Ég held upp á þá nánast á hverjum degi:o)
 
Hmmm, já, hvað er annars að frétta af mér? Allt það bezta þrátt fyrir nöldrið hérna. Hef átt mjöööög góða daga undanfarið og það er mitt eigið "VAL";o)
Löng helgi framundan sem er yndislegt. Ætla út að borða með góðum vinum á laugardagskvöldinu og svo á eitthvað tjútt á eftir, sennilegast á Apótekinu. Gott þynnku-brunch á Vox á sunnudeginum og svo bara svefn og leti..............sweet.
 
Heyrðu og ég er byrjuð í leikhúsinu með henni Eddu minni aftur. Alveg brilljant skilnaður. Skil sýninguna enn betur núna eftir að hafa upplifað svona brilljant skilnað sjálf;o) Fullt af sýningum framundan, og líka ein sýningarhelgi á Akureyri sem ég tek að sjálfsögðu að mér. Með mestu ánægju því þetta er svo gaman. Edda er algjörlega ein af mínum uppáhalds. Fáir sem ég þekki sem eru með svona yndislega nærveru. Leiðist aldrei með henni:o)
 
Jæja, þetta er orðið ágætt í bili, þarf að fara að hækka stýrivextina.
 
 
Ekki gera það sem þér er sagt - finndu það út sjálfur!