Gunna 的个人资料Gonzo-World照片日志列表更多 ![]() | 帮助 |
|
3月27日 Nýr bíll???Hef verið með bíl í prufukeyrslu síðasta sólarhringinn. Þarf að taka ákvörðun í dag hvort ég vil´ann eða ekki.
Þetta er Ford Escape XLT Sport, árg. 2005, 3 lítra vél og 200 hestöfl. Hann er líka sjálfskiptur sem er eitthvað alveg nýtt fyrir mig. Hef BARA átt beinskipta bíla hingað til. En mér líkar vel, hann er fallegur, þægilegur og kraftmikill að mínu mati. Það er rosa fínt að sitja svona hátt uppi og sjálfskiptingin er snilld í morguntraffíkinni. Eina vesenið er eiginlega númerið á honum.
MU - Ég er ekki að grínast, það er MU. As-in-muuuundu eftir mjólkinni!!!!!
Númer á bíl skipta mig nebbla miklu máli, bílarnir fá nafnið sitt út frá því. T.d. Húbbi karlinn, fyrsti bíllinn minn, hann var með númerið HB (Oh, hvað ég sakna hans). Hiluxin var Nilli, (NL), o.s.frv. En MU, hjálp, hvað geri ég við það? Kusan? Mundi? Tillögur óskast.
Annars er ég ekki alveg búin að taka ákvörðun, fer allt eftir hvað þeir bjóða mér gott tilboð og hvað ég fæ fyrir Focusinn. Já, kannski verður Gunnan bara ekki lengur skvísa á kóngabláum sportbíl, heldur fín frú á gráum jeppa. Jiiisúús minn hvað maður er að verða gamall.
Var annars boðin í mat í gærkvöldi til manneskju sem vill ekki láta nafns síns getið. Rosa fínn matur og góður félagsskapur. Takk fyrir mig!
Svo er komin voða mikill spenningurinn í mann fyrir Kúbuferðina. Er byrjuð að tína hitt og þetta til. Á t.d. eftir að redda ferðatösku og sólarvörn #30 fyrir albínóa eins og mig. Svo ráðlagði mér einhver að byrja að taka hjarta/barnamagnyl viku fyrir flugið, því þetta er víst svo langt flug (10 tímar) og betra að þynna blóðið til að koma í veg fyrir blóðtappa, (Again.......jiiiisssús hvað maður er orðin gamall eitthvað). Er líka búin að fá lánaða svona flugsokka (nei Patsy, það eru ekki hvítir nylon-hnésokkar, LOL).
Jæja, ég læt nú heyra í mér áður en ég læt mig hverfa af landinu, og læt vita hvort ég kaupi mjólkurbílinn:o)
Kerlingin. 3月24日 X-Factor pælingar hjá geðsjúklingiJæja, búin að liggja í leti fyrir framan imbann í kvöld, í samfloti með nokkrum vel völdum ostum og rauðvínsflösku (Pinot Noir að sjálfsögu....................sjá Sideways....).
Ég hef ekki alveg dottið inn í X-factor hingað til, hef alveg fylgst með, en kannski ekki alveg af einskærum áhuga. Kannski meira út af forvitni hingað til. Sá samt allan þáttinn í fyrsta skipti í kvöld. Fékk áhuga, og kaus meira að segja. Er loksins búin að fatta að liðið/aðilinn sem ég held með, tapar alltaf!!!!!!!
Hélt svo inniega með liði MH í Gettu betur fyrr í kvöld, þeir voru svoooooo að vinna þetta að mínu mati, en neinei, töpuðu náttl. á síðustu sekúndunum:o) Svo yfir X-factornum, þá var ég alveg ákveðin í að GÍS ættu mitt atkvæði, finnst þær bara MEST cool, en neinei, þá detta þær náttl. út.
Note-to-self: Ekki halda með neinum!!!!
Já, þessari furðulegu vinnuviku er loksins lokið, búið að vera frekar erfitt að vakna fyrir klukkan sjö alla vikuna, hlakka skiljanlega mikið til að sofa út á morgun. Náði samt að verða smá til gagns í kvöld, þrátt fyrir rauðvíns-sötr og sjónvarpsgláp. Ég fann nokkur vel valin þýsk "þjóðlög" og bjó til möppu í tölvunni minni undir þau. LOOOL, ef samkeppnisstofnun myndi af einhverjum ástæðum taka tölvuna mína núna til rannsóknar, þá væri ég SVOOOO lent á Kleppi eftir smá stund.............. Þýska stemningin mun samt skýra sig þegar nær dregur, vona alla vegna að ég hafi ennþá áhuga á svoleiss þá, og sé ekki bara búin að sökkva mér í Kúbverska dansa, romm og vindlareykingar.
Mæti alla vegna hress!!!!
Tchusss, tchuss,
99 Luftbaloons............................
3月19日 Karlabúr í Nordica Spa?Gúúúú moren hér á mánudegi!!!!
Ég var vöknuð fyrir allar aldir í morgun, því þessa vikuna byrjar vaktin mín klukkan 8. Já, það sem maður getur verið vanafastur, ég ætlaði aldrei að ná að opna augun þegar klukkan hringdi, þó ekki nema einni klukkustund fyrr en venjulega.
En helgin já, OMG hvað helgin var æðisleg. Algjört afslöppunarkvöld á föstudeginum, sjónvarps- og videógláp, snakk og ídýfa. Svo var laugardagurinn algör afslöppun líka, heldur betur, því mín skellti sér í dekurdag í Nordica Spa. Úllala! Var mætt rétt fyrir ellefu um morgunin og skellti mér fyrst í heita pottinn. Þar voru nokkrar dömur fyrir, og tveir ungir og veeeel myndarlegir strákar stóðu við pottinn og voru að nudda þær. Híhí, var eitthvað frekar fyndið að sjá, þeir virkuðu alla vegna voða þræla-legir fyrir mér:o) Eins og þetta væri svona austurlenskt karlabúr, þar sem þeir væru þrælar okkar kerlinganna. Ég þáði ekki nudd frá þeim, enda á leiðinni í nudd sjálf, en kannski aðallega bara af því mér fannst þetta svo fyndið eitthvað, og var hrædd um að fá hláturskast þarna í pottinum fyrir framan alla!
Eftir góða afslöppun í pottinum, skellti ég mér í sjóðandi heita vatnsgufu með Eucalyptus (mynta), og þetta þrælvirkaði alveg á kvefið hjá mér. Svo var komin tími að skella sér í sloppinn aftur, og fara í andlitsbað. Mmmmm, var pökkuð inn í þvílíkt þægilegt teppi og lá þar hálfmeðvitundarlaus við slökunartónlist. Ég rankaði samt all-hressilega við mér þegar stúlkan spurði hvort hún ætti ekki að plokka og vaxa á mér augabrúnirnar. Whaaaaaa? Ég var nýbúin að plokka þær sjálf, snyrti þær þvílíkt kvöldinu áður, sérstaklega fyrir andlitsbaðið. Grenj, ég hef greinilega gert þetta svona rosalega illa, svo ég þorði náttl. ekki annað en að segja "já takk, það er einmitt svo langt síðan ég hef gert eitthvað við augnbrúnirnar" (*Bít í vörina*). Svo byrjaði þvílíkt vax- og plokkunarferli, þetta tók dágóðan tíma, og loksins þegar þessu var lokið, rétti hún mér spegil og sagði glaðlega "svona, ertu ekki bara ánægð með þetta"?
Svar: NEEEEEEEEEEEI, hvar voru augnbrúnirnar mínar? Hún tók þær af!!!! Ég sver, hún minnkaði þær um helming, og mér líður eins og dragdrottingu með örmjóar, gervilegar og teiknaðar augnbrúnir. Nei, ég var sko ekki ánægð, heldur í sjokki! En ég ætlaði nú ekki að láta þetta eyðileggja fyrir mér daginn, svo ég reyndi að slaka á aftur, og það tókst mjög vel, því andlitsbaðið var algjör unaður, sérstaklega þegar hún nuddaði allt höfuðið, andlit, háls og axlir með olíu. Mmmmmmm, já takk!
Svo þegar þessu var lokið, var komin tími á líkamsnuddið mitt. Ég settist í biðstofuna og fletti aðeins í nýjasta Vogue blaðinu, þangað til að ég heyri kallað "Gúúúrránn.......................,Gúúúúráááán"?
Gat verið að það væri verið að kalla á mig? Jújú, þá kom í ljós að nuddarinn minn var erlendur og KARLMAÐUR! Úff, ég vissi ekki alveg hvernig ég átti að vera, hef bara farið í nudd til kvenna hingað til, fannst þetta svoldið spes. Jæja, ég lagðist þarna, nánast nakin á bekkinn og lokaði bara augunum, þetta hlyti að vera í lagi.
Og jújú, þetta var alveg fínt, hörkugóður nuddari, og ég verð bara að viðurkenna að ég fíla karlmannshendur muuuuun betur þegar kemur að því að nudda mig, sterkari og stærri einhvern veginn, þrælvirkar alla vegna:o) Ég var samt að bíta allmikið í vörina á mér og berjast við það að fá ekki óstöðvandi hláturskast þegar hann sagði pent: "I pull down panties a little bit....ok"?
LOOOOOOOOOOOOL
En eftir nuddið............sem hefði alveg mátt vera miklu lengra (zzzzzzzz), þá skellti ég mér aftur í pottinn og þáði núna svona herðarnudd, OMG hvað það var þægilegt. Og jújú, enn einn karlmaðurinn:o) Fór svo aftur í gufu (nýta daginn sko, fyrst maður var mættur þarna), og fór svo í sloppnum mínum inn í svaka þægilegt slökunar-og hvíldarherbergi, með lazyboy, ilmkertum og slakandi tónlist. Zzzzzzzzzzzzzzzzzzz.
Jæja, þetta var svo orðið ágætt, maður var vel soðin eftir allt heita vatnið og hver einasti vöðvi í líkamanum slakur. Ég kólnaði að vísu fljótt aftur því úti var snjóbylur og það tók dágóðan tíma að moka sig inn í bílinn. Kom við í Smáralindinni á leiðinni heim og keypti afmælisgjöf hana Stefáni Smára krúsíkút. Kom líka við hjá mömmu og pabba og fékk ost og smá rauðvín (Dekrið sko). Svo þegar ég loksins kom heim um hálf fimm, þá var bara búið að ryksuga og skúra íbúðina mína, algjör snilld. Ég þarf greinilega að fara oftar að heiman í dekur. Og í ískápnum voru nautalundir, bökunarkartöflur og salat, rauðvínsflaska á stofuborðinu (Pinot noir að sjálfsögðu), og nóg af ostum:o)
Mmmmm, því getið því rétt ímyndað ykkur hvað bragðlaukarnir höfðu það gott um kvöldið. Svo steig ég smá River-dans í tilefni dagsins, þ.e. St. Patreks dags, og setti "Wisky in the jar" á fóninn. Já og svo var bara raðað í sig ostar og rauðvín þar til næsta morgun:o) Ég er orðin algjör snillingur í að vaka fram á morgun, þetta er mjöööög ólíkt mér.
Svo fór ég í 2ja ára afmælið til Stefáns Smára á sunnudeginum, ekki kannski alveg við hestaheilsu, en ég meikaði þetta alveg. Svo var sunnudeginum bara eytt í að sofa og kúra yfir Simpsons, akkúrat það besta við þynnkunni að mínu mati.
Jæja, ný vinnuvika byrjuð og ég er ekki frá því að ég brosi aðeins breiðara brosi en venjulega, þökk sé þessari yndislegu helgi sem endurnærði mig algjörlega frá toppi til táar!
Já, ég mæli sko með Nordica Spa, nema þú sért karlmaður, það gæti orðið svoldið vandræðalegt:o)
Dekurdýrið. 3月15日 18 daga prógrammNú er það harkan sex!!!! Nei, ekki Hard-core sex, heldur púl í ræktinni.
Ég hef 18 daga til stefnu þangað til ég fer að stripplast um í bikiní á Kúbu, og líkaminn minn gæti litið betur út.................miklu betur út.
Jájá, ég veit, þið getið alveg sparað hneykslunina, ég er ekki feit, ég veit það alveg, grindhoruð ef eitthvað er. En það er eitt að vera grannur og ALLT annað að vera í formi og flottur. Og því ætla ég að ná á næstu 18 dögum.
Hvernig? Jú, ég ætla í líkamsræktina hérna í bankanum á hverjum virkum degi þangað til, gera maga-, rass- og læra-æfingar, lyfta lóðum, plús að ég ætla að bera á mig hin ýmsu töfrakrem tvisvar á dag og berja húðina á mér daglega með trjágreinum. Nei, ok, ekki alveg, en nudda hana með grófum hanska alla vegna.
Já, nú er það sko aginn, mér skal takast þetta.
Annars er bara fínt af mér að frétta, sexý wiský-röddin er ennþá til staðar, kannski verð ég bara svona forever og get tekið þátt í Janis Joplin-karókíkeppnum. Kvefið er líka enn til staðar, en á hraðri útleið þó (oj).
Í vinnunni gengur fínt, búið að bætast við fullt af aukaverkefnum og ég læri eitthvað nýtt á hverjum degi. Er orðin vaktstjóri og hef unnið til að verða sex alla þessa viku við það að loka kerfinu og sjá til þess að það stemmi. Svo hef ég verið að leggja lokahönd á ársreikning Mötuneytisins, grobb, grobb. Fyndið alltaf þegar eitthvað verkefni virðist vera Mt. Everest til að byrja með og maður sér ekki fram á að skilja það né klára og finnst maður svoooo heimskur eitthvað, og svo bara allt í einu er þetta að verða búið og maður kemur sér á óvart hvað heilinn í manni getur:o)
Heyrðu já og afmælið hjá ónefndu persónunni um síðustu helgi var hrein snilld. Þetta var án efa flottasta og skemmtilegasta partý sem ég hef farið í á ævinni. Skemmtiatriðin, bollan með þurrís svo það rauk upp úr henni, mexíkanskur matur, margartítur eins og þú gast í þig látið, tjald út á palli með gashiturum, því mannfjöldinn var ótrúlegur. Og alls konar fólk á öllum aldri. Flugfreyja og slökkviliðsmaðúr í fullum skrúða t.d. og full rúta af bandaríkjamönnum í svona "dirty weekend" á Íslandi komu að skoða liðið (með fylgdarkonum), pör hurfu inn á klósett í korter, tjaldið fauk þegar byrjaði að hvessa um nóttina og ég veit ekki hvað. Og svo var dansað og sungið til morguns. Svona eiga partý að vera. Algjör óþarfi að fara á einhvern skemmtistað niðri í bæ, þarna var allt til staðar sko. Klukkan var alla vegna farin að ganga sjö um morgunin þegar sveitt og uppgefin, alsæl og completly raddlaus Gunnan labbaði heim. Ííííííha!
En svo er elskuleg helgin að nálgast, og nú verður því bara tekið rólega. Eldað eitthvað gott og kannski opnuð rauðvínsflaska, og bara videógláp held ég. Alveg til í það.
Jæja elskurnar mínar (þið fáu sem nennið að lesa þetta), læt þetta nægja í bili.
Bæti hérna í restina smá spurningalista sem ég svaraði fyrr í dag, rosa sniðugt og gaman að senda þetta milli vina.
Read through the comments below about your friend and then make sure you read the instructions at the bottom.
Have fun! 1. What time is it? 09:36 2. Name: Guðrún Elín Herbertsdóttir 25. Who is the person that you are most curious to see their responses: Öllum!! 31. How many people are you sending this e-mail Já, það er gaman að þessu:o) (Sagt með rámri viský-rödd)
3月9日 KLÁM????Enn tekst fólki að hneyksla mig. Ég verð bara að blogga um þetta, því það er langt síðan ég hef orðið vitni af eins mikillri vitleysu.
Ég er að tala um umræðuna sem hefur sprottið um forsíðumyndina á fermingarbæklingi Smáralindar. Þetta fáranlega blogg sem þessi kona hér, Guðbjörg Kolbeins kennari við Félagsvísindadeild HÍ hefur nú sem betur fer fjarlægt af bloggsíðu sinni, sennilega vegna hótana:o)
Umrædda mynd má sjá í frétt hér og þetta segir kannski allt sem segja þarf. En guð minn góður, að þessi kerling hafi verið að tala um þessa stelpu, sem einhverja stífmálaða 14 ára hóru, tilbúna að láta einhvern taka sig að aftan, í frægri klámmynda-stellingu, með stút á munninum, tilbúin að tott´ann á einhverjum, ISS, ég á ekki orð. Hvernig í ósköpunum tekst þessari konu að sjá eitthvað dónalegt við þessa mynd? Það er aldeilis sóðalegt ímyndunaraflið. Ætli þessi kona þurfi aldrei að beygja sig eftir einhverju heima hjá sér?? Ef hún missir eitthvað í gólfið, skilur hún það þá bara eftir þar, svo hún sé ekki að klæmast á almannafæri!!? Svo hún særi ekki blygðunarkennd mannsins síns og gerist sek um klám!!?
Ef ég væri foreldrar stelpunnar, þá myndi ég pottþétt kæra þessa kerlingu fyrir meiðyrði. Ekki spurning. Svo heyrði ég einhvers staðar að þessi kerling og maðurinn hennar (pottþétt bældur) væru búin að leggja fram kæru!!! SJJJAAAA! Kæra hvað? Stelpuna? Blaðið? Smáralind?
Mér finnst þessi kona alla vegna bera af ennþá í keppninni Fífl ársins 2007. Mikið rosalega hefur alla vegna paranojað fólk sem gerir brjálað mál út úr engu, farið í taugarnar á mér það sem af er ársins. Alveg undarlegt! Passiði þrýstinginn maður!!!
Jájá, ég veit alveg að ég er að tala illa um þessa konu, opinberlega, á blogginu mínu, án þess að þekkja hana neitt. Hræsni? Nei, það finnst mér ekki. Ég er bara stórhneyksluð á því að manneskju skuli detta í hug að tala svona um 14 ára stelpu og vera líklega búin að gera það að verkum að þessari stelpu verður strítt endalaust næstu mánuði og kölluð hóran það sem eftir er. Mér finnst því í lagi að tala illa um þessa kellingu. Jæja, hún má eiga það að hún tók þessi skrif sín til baka, æi, mér finnst það samt meira vera heigulsháttur, ekki kom afsökunarbeiðni, færslan bara tekin út. Algjör chicken, "buagg buagg buagg....." (Eða hvað sem hænur segja nú.........).
Jæja, það er annars komin föstudagur, 40 ára afmælisveisla í kvöld hjá ónefndri persónu sem vill ekki láta nafns síns getið. Verður örr. fjör, ég og kettirnir ætlum alla vegna að láta sjá okkur, sjá aðra og þiggja veitingar. Skemmtiatriðin eru víst ekki af verri endanum, þjóðþekktar persónur þar á ferð. Skrítið að ég hafi ekki verið fengin til að vera með eitthvað show??? Ég er svo skemmtileg. Sérstaklega núna, full af kvefi og hor, næpulituð húðin farin að minna á blöðin í prentaranum og endalausu hóstaköstin alveg sérlega óaðlaðandi.
Já, ég er Lilli aumingji þessa dagana, en þetta er allt að koma. Ég sver, er hressari í dag en í gær, og svo er líka að koma helgi, langþráð, og alveg líkur á að maður nái þessu almennilega úr sér fyrir fullt og allt. Ú-Ú-Ú, svo nálgast Kúbuferðin líka óðfluga (oj, óð fluga, hjálp), mikið rosssssalega verður það æðislegt maður. Sól, rauðvín og romm. Mmmmm, já takk.
Góða helgi allir, og í guðana bænum passiði þrýstinginn!!!
3月6日 "Bíddu adeins medan ég snýdi mér"Oh, the story of my life þessa dagana. Ennþá full af kvefi og alveg komin með nóg!!!!
Er samt mætt aftur í vinnu, var hvorki meira né minna en heila viku í veikindafríi, og nú get ég bara ekki meir, vinnunnar vegna, en heilsan er langt frá því orðin góð.
Já það er nebbla nóg að gera í vinnunni, er að læra inn á fullt af nýjum verkefnum, og það er erfitt að hugsa um svona mikið af nýjum hlutum þegar hausinn á manni er að springa úr kvefi:o(
Þetta verður því hundfúlt og innihaldslaust blogg núna, er bara ekki með heilsu í meira.
Ætla að skreppa í mat, reyna að nærast eitthvað, þó ég finni ekkert bragð, og skreppa svo í gufu hérna í bankanum og vona að það losi eitthvað um kvefið.
Lofa að koma með hresst og æðislegt nýtt og heilsuríkt blogg fljótlega!
*Snuff og snýt* |
|
|