Gunna 的个人资料Gonzo-World照片日志列表更多 ![]() | 帮助 |
|
12月27日 Gleðilega hátíð!Vona að þið hafið haft það rosa gott um jólin elskurnar mínar, ég er sko búin að hafa það yndislegt.
Fyrstu jólin mín án foreldranna gengu bara rosalega vel, það var mjög fínt að vera hjá tengdó. Góður matur og alltaf gaman að kynnast nýjum siðum og víkka aðeins sjóndeildarhringinn hjá sér:o) Við fórum svo í hangikjötsveislu til múttu og pabba á jóladag, og svo aftur til tengdó á annan í jólum. Þessir dagar hafa bara verið matur, matur, matur, sjónvarp, sjónvarp, sjónvarp, og rauðvín, rauðvín, rauðvín:o)
Við fengum fullt af alveg æðislegum gjöfum, erum alveg í skýjunum með allt. Fengum m.a. Wok-pönnu, lampa, risa-kertastjaka, mincing hníf og glæsilegt skurðhnífasett svo nú getum við aldeilis farið að rífast og slást fyrir alvöru sbr. parið á hæðinni hérna fyrir ofan, hehe. Lalli minn gaf mér annars svaka flott dekur í Nordica Spa og frábæra græju til að hafa hjá mér í vinnunni sem er útvarp, cd og mp3 spilari. Já, þetta voru sko góð jól.
Er annars rosalega löt, búin að snúa sólarhringnum algjörlega við, geyspaði mig næstum úr kjálkalið í vinnunni í dag. Bloggið líður líka fyrir það, ég nenni einhvern veginn ekki að skrifa neitt, setti samt inn nýjar myndir frá desember. Mig vantar nokkra daga til að hlaða batteríin aftur, melta allar þessar kræsingar sem maður hefur sett ofan í sig og snúa sólarhringnum aftur við.
Knús á meðan.
12月15日 Líður að jólum............Hóhóhó!
Hvað er það annars þetta sem jólasveinninn er frægur fyrir að kalla? Er þetta hlátur, eins og Hahaha, eða er þetta kveðja, eins og HæHæhæ?
Jæja, dagarnir fljúga áfram, jólin rétt handan við hornið. Ég upplifi þessa dagana nákvæmlega sama panikkið eins og venjulega, "Shit, eru jólin í alvöru í næstu viku? En ég á eftir að senda öll jólakortin, og kaupa jólagjafirnar, og mig vantar pappír, og límbandið er örr. búið. Hvað er hægt að gefa mömmu og pabba, þau eiga allt, og ég nenni ekki að taka baðherbergið í gegn, en verð samt að gera það".
Svo reddast alltaf allt, hefur alla vegna gert það hingað til, svo ég er í rauninni áhyggjulaus. Ég veit að mér tekst þetta:o) Ég er alla vegna búin með eitthvað, gjafirnar eru farnar til Akureyrar, kort til útlanda, ég veit hvað ég gef ömmu, á bara eftir að kaupa það. Ég er búin að setja upp flest skraut á heimilinu, og Lalli ætlar að skúra gólfin um helgina. Ég fékk að vísu þá hugmynd í nóvember að kaupa fullt af drasli til að gera nú mín eigin jólakort í ár, og ég dauðsé eftir því. Ég veit ekki alveg hvað ég var að hugsa, en þrjóskan lemur mig áfram að klára þetta þá, fyrst ég er búin að eyða pening í þetta. Ég er búin að föndra 3 stykki, og ég svitna við tilhugsunina um tímann sem ég á eftir að eyða í fleiri. Hehe, kannski að mig vanti líka alveg fílinginn, þetta á náttúrulega ekki að vinnast í einhverju stressi, heldur í rólegheitum, með jólatónlist og smákökur. Ég sé hvort að "andinn" komi ekki yfir mig um helgina.
Það er annars jólahittingur hjá fjölskyldunni hans Lalla í kvöld. Fullt af kræsingum, og einhver fékk þá hugmynd að leigja Singstar. OMG, verður spennandi að fylgjast með því. Þetta er að sjálfsögðu bara gert fyrir "börnin", en það verður mjög forvitnilegt að sjá hverjir munu taka þátt þegar líður á kvöldið:o)
Ég er annars ennþá í smá sjokki yfir þeirri staðreynd að það verður möndlu-eftirréttur hjá þeim í KVÖLD, þ.e. tengdó ákváðu þessi jólin að sleppa bara möndlunni á jólunum og hafa hana í staðinn í kvöld, þegar öll barnabörnin hittast, því þessi siður er greinilega bara fyrir "börnin" að þeirra mati. Og þar sem ég verð yngsti gesturinn á þeirra heimili á aðfangadag, þá er innra barnið í mér frekar miður sín, og finnst svindl að fá ekki möndlukeppni á jólunum. Má maður ekki vera barn ef maður á ekki barn? Mér finnst alla vegna hálffúlt að þurfa að eiga barn til að hafa afsökun til að hafa gaman að "barnalegum" hlutum.
Híhí, nema að þetta sé mjög úthugsað samsæri hjá þeim, tengdamútta er orðin langþreytt að bíða eftir erfingja frá okkur, svo þetta er eina ráðið, láta mér finnast ég vera orðin voða "fullorðin" eitthvað og leiðinleg, svo ég fari nú loksins að sjá eitthvað jákvætt við það að koma með kríli og fara í barnaleik. Sniðugt, en ég er samt alveg harðákveðin í að haga mér ennþá eins og krakki, og neita að finnast það eitthvað sjálfselskt, þó ég vilji vera barnaleg áfram og halda í gamla og góða siði.
En það verður alla vegna fjör í kvöld, gaman að hittast svona öll loksins saman, öll barnabörn, og í fyrsta sinn síðan ég fæddist, er ég ekki yngsti keppandinn í möndlukeppninni:o) Má ég þá ekki vinna?
Að öðru..............
Ég get bara ekki hamið mig um að tala um óþolandi jólaauglýsingar í desember, sem eru gjörsamlega að gera mig geðveika. Sérstaklega þessar í útvarpinu. Mig langar að varpa fram þeirri spurningu hérna, hvort að einhver sem les þetta hrafnaspark mitt, finnist í alvöru auglýsingarnar frá Herra Hafnarfirði eða Zikk Zakk eitthvað skemmtilegar? Eða kannski bara gjörsamlega óþolandi? Endilega látið mig vita. Kannski væri hægt að gera undirskriftarlista og BANNA þessar auglýsingar í eitt skipti fyrir öll? Aðrar jólaauglýsingar sem snúast aðallega um að hrópa og kalla í ýktri rödd, þó það sé jólalag spilað undir, höfða bara ALLS EKKI til mín, og eru ekkert jólalegar að mínu mati. Og ég legg mig extra mikið fram við það að forðast þær vörur sem þar er verið að auglýsa, í mótmælaskyni.
Þó það sé margt á gömlu Rás 1 gufunni sem höfðar alls ekki til mín, þá eru alla vegna vel þolanlegar auglýsingar þar. Og mjög fáar þar að auki. Það er spurning hvort maður sleppi ekki hinum stöðvunum í desember, og hlusti þá bara á diska, til að halda geðheilsunni góðri á þessum annars mikla stress-tíma.
Ég er annars bara glöð og hress, hef í raun ekki yfir neinu að kvarta. Lífið er yndislegt (ég geri það sem ég vil). Ég veit að alvöru jólaskapið blundar þarna rétt undir yfirborðinu hjá mér, og mun skjóta upp kollinum áður en ég veit af. Augun í mér eru ágæt, fæ samt verk í þau öðru hverju, og sjónin rokkar svoldið milli daga. Ég fer í tjékk á mánudaginn, og þá kemur betur í ljós hvernig árangurinn er so far.
Hafið það rosa gott í jólaaðventunni, passið ykkur að borða ekki of mikið, og ég mæli með því við alla, að taka alla vegna 3-4 daga fyrir jólin, þar sem þið borðið bara fljótandi fæðu, eða alla vegna bara ávexti og grænmeti, og fullt fullt af vatni. Þið munið græða á því, maginn ykkar verður þakkátur og ykkur líður muuuuuun betur eftir jólamatinn. Það er ekki tilviljun að það sé talað um jólaföstu, það VAR alla vegna einu sinni talað um hana, núna mætti kalla jólaaðventuna jólaTROÐSLU:o)
*Rop* og *andvarp*
12月4日 É C !!!!Ja hérna, þvílíkir tímar tækniundra sem við lifum á núna!
Nærsýnin farin, ég sé, ég sé, ég sé!!! Var komin með næstum því 100% sjón strax daginn eftir aðgerð. Ég er ennþá að átta mig á þessu, trúi því varla, og finnst ég ennþá bara vera með linsur, því tilfinningin er svoldið svipuð, finn fyrir smá pirring og þurrki í augunum, mjög svipað eins og þegar maður er búin að vera lengi með linsur og er orðin þreyttur í augunum.
Aðgerðin gékk annars eins og draumur, læknirinn sagði alla vegna að ég hefði verið eins og draumur (grobb), var alveg grafkyrr og horfði akkúrat þar sem ég átti að horfa. Dugleg stelpa!
Ég mætti upp í Sjónlag rétt fyrir tvö á fimmtudeginum og gékk frá greiðslunni. Fékk síðan róandi töflu (ekki út af reikningnum) og fékk að setjast í fínan Lazy-boy og slaka á í c.a. hálftíma meðan taflan var að virka. Svo stuttu seinna kom hjúkrunarfræðingur og lét mig fá smá "nestisbox" eins og hún kallaði það. Nei þetta var nú ekkert til að borða, heldur augndropar og space-gleraugu sem ég átti að nota eftir aðgerðina. Gleraugun þarf ég að sofa með fyrstu fjórar næturnar, og ég þarf að setja alls konar sýklalyfja- og bólgueyðandi dropa í augun á mér á 4 klst fresti.
Svo mætti læknirinn og fór yfir aðgerðina með mér og ég spurði og spurði, allt sem ég var að panika yfir, hehe. Hann náði alveg að róa mig, og sagði að það að taka þessa ákvörðun og panta tíma, væri langmesta málið við þessa aðgerð. Aðgerðin sjálf væri peanuts!
Svo var mér fylgt inn í aðgerðarherbergið, þar var ískalt, en það var búið að vara mig við því, svo ég var vel klædd og svo vafinn inn í teppi í þokkabót þegar ég var lögst á bekkinn. Ég fékk stressbolta til að kreista og svo byrjaði ballið.
Augunum var haldið opnum með sperrum, sem var ekki nærri því eins óþægilegt og ég hélt. Svo var sprautað deyfidropum í augun. Mesta málið var kannski flipaskerinn (hræðilegt orð), en það er svona gadjet sem sogar sig fast við augað, svoldill þrýstingur, og sker 0,11 mm flipa af hornhimnunni sem er flett til hliðar. Svo átti ég bara að horfa, grafkyrr upp í rauða stjörnuþoku, sem ég gerði, og þá byrjaði svona "smell-smell-smell" hljóð, ekkert rosalega hávært. En það kom svona skrítin brunalykt, alveg eins og þegar hár brennur. Það tók svona 40 sekúndur, og svo var byrjað á hinu auganum. Það gékk aðeins verr þar, ég fann alla vegna smá sársauka þegar flipaskerinn var að athafna sig þar, kannski voru bara deyfidroparnir ekki byrjaðir almennilega að virka eða það auga bara viðkvæmara. Var alla vegna næstum búin að panikka þá, kreisti boltann eins og brjálæðingur, en svo var þetta bara búið áður en ég vissi af, og laserinn tók bara 30 sekúndur á því auga. Svo var hornhimna-flipanum bara flett aftur til baka, einhverjir dropar settir í augun, og svo mátti ég bara setjast upp. Og þau bentu mér á klukkuna á veggnum (sem ég sá ekki þegar ég lagðist niður fyrst) og spurðu mig hvað klukkan væri. Og hana sá ég skýrt og greinilega, hún var 13 mínútur yfir þrjú!!! Ótrúlegt.
Svo fékk ég space-sólgleraugun á mig, og var fylgt fram í andyri. Þar beið Lalli eftir mér, og við héldum heim á leið. Komum við í apóteki til að leysa út fleiri augndropa, og það var svoldið skondið, því ég var með Visakortið, svo ég þurfti að koma með inn í apótekið og borga. LOL, held það hafi aldrei verið horft eins mikið og asnalega á mig, með þessi undarlegu geim-sundgleraugu. Svo lagði ég mig bara þegar heim var komið og reyndi að hvíla augun eins og ég gat, og "horfði" bara á simpson eftir minni;o) Alveg nóg að hlusta bara og sjá þetta fyrir sér.
Á föstudeginum sá ég bara fínt, gat lesið fréttablaðið og horft aðeins á videó. Fór svo í skoðun upp í Sjónlag klukkan þrjú, og jújú, allt í fína lagi hjá mér, næstum komin með 100% sjón. Glæsilegt!
Helgin hefur síðan bara gengið ágætlega, við fórum á voða fínt jólahlaðborð hjá Félagsmálaráðuneytinu á laugardagskvöldinu, það gékk bara fínt. Ég mátti að vísu lítið mála mig í kringum augun, stalst samt til að setja smá augnskugga, en það er alveg harðbannað að nota maskara í alla vegna viku. Og ég má ekki heldur nudda augun í viku, þess vegna á ég að sofa með þessi gleraugu, til að koma í veg fyrir að ég nuddi augun óvart í svefni.
Ég náði ekki að klára aðventuskreytinguna mína um helgina, en ég kveikti samt á fyrsta kertinu. Ætla að klára þetta og byrja að skreyta íbúðina meira í kvöld.
Ég er svo mætt aftur til vinnu, svoldið skrítið, ég þoli greinilega birtu ekkert rosalega vel (heppin þá í skammdeginu núna), en ljósin hérna í bankanum er voða mikil og skær, svo ég er með hálfslökkt bara inn á skrifstofu hjá mér, og píri augun þegar ég þarf að labba fram.
Jæja elskurnar mínar, vildi bara láta ykkur vita að allt gékk vel og ég er nánast komin með arnarsjón:o)
Gunnsa Sjáandi.
|
|
|